William Cavendish, hertoginn af Newcastle

William Cavendish, hertoginn af Newcastle (1592-1676) var víðlesinn, auðugur og vel menntaður. Hann var virtur sem hestamaður og þjálfari bæði hesta og reiðmanna, heimspekingur og vísindamaður, skáld og rithöfundur, tónlistarmaður og stjórnmálamaður.

Hann var stuðningsmaður konungs og barðist gegn Cromwell í ensku borgarastyrjöldinni, tapaði eigum sínum kjölfarið og flúði frá Englandi 1644.
Í útlegð sinni frá Englandi helgaði hann tíma sínum til hestamennsku og þjálfunar hrossa og stofnaði virtan reiðskóla í Antwerpen.

Hann skrifaði tvær bækur um reiðmennsku, sú fyrri var gefin út á frönsku 1658 (La méthode nouvelle et Invention extraordinaire de dresser les chevaux) meðan hann var enn í útlegð. Hin var gefin út á ensku 1667 (A New Method, and Extraordinary Invention, to Dress Horses) eftir að komuna til baka til Englands.

Sú fyrri sem talin er vera mikilvægara framlag til sögu hestamennskunnar var síðar þýdd á ensku og heitir á því máli A general system of horsemanship.

Til baka á Ágrip af sögu reiðmennskunnar

Heimildir og frekari upplýsingar:

s2Member®